25.01.2012 23:26

Drög að leikjafyrirkomulagi sumarsins 2012

Í dag voru birt drög að leikjafyrirkomulagi 2.deildar í knattspyrnu þetta sumarið. Völsungar eru þar skráðir og verður meira um ferðalög heldur en í fyrra því tvö norðanlið fóru upp og sunnanlið féllu úr 1.deild.

Völsungar hefja leik á nágrannaslag en liðið mætir KF sem er sameinað lið Siglu- og Ólafsfjarðar á Húsavíkurvelli föstudaginn 11.maí. Við töpuðum báðum leikjunum fyrir þeim síðasta sumar og eigum því harma að hefna.

Aðrir leikir sem vert er að nefna er heimaleikur gegn Hamar laugardaginn 28.júlí en að öllum líkindum er það Mærudagahelgin. Tímabilinu verður svo slúttað á Húsavíkurvelli laugardaginn 22.september en þá kemur lið Njarðvíkur í heimsókn.

Liðið mun mest spila á föstudögum og laugardögum þetta sumarið en 13 laugardagsleikir eru skráðir nú þegar og þrír föstudagsleikir. Liðið mun spila tvo þriðjudagsleiki og einn leik á þeim vikudögum sem ekki hafa verið nefndir. Spennandi og gefandi tölfræði.

Þeir sem vilja kynna sér leikjalistann geta farið beint inn á hann hér;
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=26466&Rodun=U

21.09.2011 07:47

Elfar Árni valinn í lið ársins - eftirsóttur af úrvalsdeildarliðum

Elfar Árni Aðalsteinsson hefur verið valinn í lið ársins í 2.deild en það er vefsíðan fótbolti.net sem stendur fyrir þessu vali á ári hverju. Það eru fyrirliðar og þjálfarar deildarinnar sem velja lið ársins, besta og efnilegasta leikmann deildarinnar.

Aðrir leikmenn Völsungs sem fengu atkvæði voru þeir Kjartan Páll Þórarinsson og Bjarki Baldvinsson.

Lið ársins í 2.deild 2011 (smella hér til að sjá meira)


Elfar hefur verið á milli tannanna á mönnum í sumar en hann endaði sem markahæsti maður Völsungsliðsins með 13 mörk auk þess sem að hann bar fyrirliðabandið seinni hluta móts og leiddi liðið. Samtals hefur Elfar Árni skorað 39 mörk með meistaraflokki Völsungs síðan hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2006.



Í dag birtist frétt á fótbolta.net þar sem skrifað er um áhuga úrvalsdeildarliða á kappanum. Elfar sem er 21 árs gamall, verður samningslaus um áramótin og samkvæmt heimildum Fótbolta.net ætlar hann að reyna fyrir sér í Pepsi-deildinni næsta sumar en mörg félög þar renna hýru auga til hans. Hér fyrir neðan má lesa fréttina:

- Elfar Árni eftirsóttur

Nánar verður rætt við Elfar Árna á komandi dögum hér á síðunni. Einnig verður hér uppgjör eftir sumarið, verðlaunahafar, myndir og myndband sem leikmenn klipptu saman en lokahóf liðsins fór fram um síðustu helgi.


11.09.2011 19:31

Frábær sigur í síðasta heimaleik sumarsins!

7-3

Byrjunarlið; Ingólfur Örn, Stefán Jón, Haukur, Jónas, Sveinbjörn Már, Hrannar, Arnþór, Bjarki, Hafþór, Alli Jói, Elfar Árni

Bekkur; Heimir, Sindri, Bjarki Þór, Rafnar og Ásgeir

Skiptingar;

Elfar Árni út - Rafnar inn
Alli Jói út - Sindri inn
Jónas út - Bjarki Þór inn

Völsungar tóku á móti Dalvík/Reyni í síðasta heimaleik sínum þetta sumarið. Fyrir leik átti Dalvík/Reynir góðan möguleika á því að fara upp í 1.deild en þurftu þó nauðsynlega að vinna þennan leik. Völsungar hafa ekki náð sínum markmiðum þetta sumarið en voru þó staðráðnir í að gera Dalvíkingum enga greiða í dag.

Fyrrum markvörður Völsunga, Steinþór Mar Auðunsson, stóð í búrinu hjá Dalvík/Reyni og Völsungar tefldu fram sínum fjórða markverði þetta sumarið, honum Ingólfi Erni Kristjánssyni.

Leikurinn fór vel af stað og var mikill hraði á leiknum út í gegn. Snemma leiks þurfti markahæsti maður heimamanna útaf. Elfar Aðalsteinsson fór upp í skallabolta og var skallað í höfuðið á honum. Elfar þurfti að fara útaf og upp á sjúkrahús en stór skurður var á höfði hans. Hann var ekki sáttur við skiptinguna en blóðið fossaði úr honum og nauðsynlega þurfti að fara með hann til aðhlynningar. Rafnar Smárason kom inn á í hans stað.

Á 25.mínútu kom fyrsta mark dagsins. Hrannar Steingrímsson átti þá flottan snúning á miðjunni og sendi góðan bolta út á hægri kantinn. Hafþór Aðalgeirsson tók þar við honum og sendi lága fyrirgjöf sem varnarmanni Dalvíkur tókst að stöðva. Rafnar Smárason vann boltann af varnarmanni og lagði út á Arnþór Hermannsson sem lagði hann snyrtilega í hornið framhjá Steinþóri. 1-0 fyrir Völsunga!

Áfram héldu grænir og á 28.mínútu varð staðan 2-0. Hrannar átti þá alveg eins draumabolta á hægri kantinn og Hafþór sendi lágan bolta fyrir markið. Á fjærstöngina mætti Rafnar en steig á boltann sem hrökk út í markteiginn. Haukur Hinriksson, varnarmaður Völsunga, var þar fyrstur að átta sig og hamraði boltann í markið. 2-0 og staðan góð hjá heimamönnum.

Eftir þetta misstu heimamenn haus og duttu aðeins úr leiknum. Dalvíkingar skoruðu mark sem réttilega var dæmt af sökum rangstöðu. Ísak Einarsson slapp í gegnum vörn Völsunga og lagði boltann vel undir Ingólf markvörð úr þröngri stöðu. Kristinn Björnsson ýtti boltanum yfir línuna en var rangstæður og flokkast þetta undir heimskulega ákvörðunartöku hjá honum en boltinn var á leið í markið.

Áfram héldu þó gestirnir og minnkuðu þeir muninn á 32.mínútu. Hornspyrna hrökk í gegnum allan teiginn og varði Ingólfur skallabolta áður en Dalvíkingar fylgdu eftir og skoruðu. Léleg dekkning þarna hjá heimamönnum. Staðan því orðin 2-1.

Dalvík/Reynir fékk svo vítaspyrnu á 37.mínútu eftir meint brot Hauks Hinrikssonar. Gunnar Már Magnússon, vítaskytta D/R, steig á punktinn en skaut boltanum langt og hátt yfir markið.

Áfram pressuðu gestirnir og fengu þeir afar ósanngjarna aukaspyrnu við vítateigslínuna á 42.mínútu. Gunnar Már Magnússon tók hana og bætti laglega fyrir vítaspyrnuklúðrið en boltinn söng í netinu. Staðan orðin 2-2 og gestirnir, á þessum tímapunkti, litu betur út. Völsungar brunuðu í sókn og var Hafþór Aðalgeirsson keyrður niður í teig Dalvíkinga þegar hann stoppaði hlaup sitt og gerði sig líklegan til að stökkva upp í skallabolta.

Jan Eric Jessen flautaði svo til hálfleiks og stóðu leikar jafnir, 2-2.

Gestirnir byrjuðu seinni hálfleikinn örlítið sterkari og á 48.mínútu upphófst einn allsherjar farsi. Framherji D/R elti bolta út að endamörkum og varnarmaður Völsunga skýldi boltanum. Þegar boltinn var kominn vel út fyrir endalínu stoppaði varnarmaðurinn en framherjinn hélt áfram. Aðrir varnarmenn hættu einnig því greinilegt var að boltinn hafði farið afturfyrir endamörk. Ekki var það þó gáfulegt hjá þeim því dómarinn þarf víst að dæma! Framherjinn hélt áfram og Hrannar Steingrímsson kom á siglingunni og sparkaði framherjann niður sem var kominn einn á móti markverði. Þá loks heyrðist í flautu Jan Erics og dæmdi hann vítaspyrnu. Hrannar fékk að líta rauða spjaldið og Völsungar því manni færri eftir allan þennan farsa. Gunnar Magnússon steig aftur á punktinn og í þetta skiptið skoraði hann örugglega. 3-2 fyrir gestina og útlit fyrir rosalega endurkomu þeirra en staða heimamanna ekki vænleg.

Völsungar ákváðu þarna að girða sig í brók og gerðu það heldur betur. Þeir gjörsamlega áttu leikinn eftir þetta. Á 51.mínútu jöfnuðu þeir metin. Sveinbjörn Steingrímsson vann þá boltann vel og sendi upp völlinn á Aðalsteinn Friðriksson. Aðalsteinn stakk boltanum inn fyrir vörnina í hlaupalínu Hafþórs Aðalgeirssonar sem hamraði boltann í slánna og inn. 3-3 og spennan alveg í hámarki.

Aðalsteinn sjálfur slapp svo í gegn örskömmu síðar en Steinþór sá vel við honum í markinu. Það var ekki að sjá á frammistöðu Völsunga að það væri að hrjá þá þótt færri væru. Þeir börðust og börðust og voru duglegir í að aðstoða hvorn annan. Gestirnir aftur á móti stóðu sig ekki vel í að nýta liðsmuninn og fundu fáar glufur á vörn heimamanna.

Það var þó ekki fyrr en á 78.mínútu sem heimamenn uppskáru fyrir vinnsluna. Hár bolti kom inn fyrir vörn D/R og Hafþór og Steinþór markvörður fóru báðir út í boltann. Steinþór náði að slá boltann frá höfði Hafþórs en ekki lengra burt en til Rafnars Smárasonar, framherja Völsunga. Rafnar lék knettinum framhjá þeim og skaut boltanum í markið. Boltinn hafði þó viðkomu í hendi varnarmanns en það kom ekki að sök. Heimamenn því komnir í 4-3 og leikurinn aftur að snúast við.

Heimamenn fengu aukaspyrnu á 84.mínútu á vinstri kantinum. Arnþór Hermannsson stillti sér upp og kom öllum að óvörum þegar hann skaut boltanum lúmskt á nærstöngina. Boltinn skoppaði rétt fyrir framan markið og í netið en Steinþór kom engum vörnum við. 5-3 fyrir Völsunga sem glaðir héldu áfram.

Á 87.mínútu bættu heimamenn enn frekar við. Arnþór vann þá boltann af varnarmanni og eftir gott spil leikmanna Völsungs þá var Bjarki Baldvinsson með boltann fyrir framan teig D/R. Í stað þess að skjóta lagði hann boltann til hliðar á Rafnar Smárason sem kláraði færi sitt vel og kom Völsungum í 6-3.

Á 94.mínútu kórónuðu Völsungar sína frammistöðu. Steinþór varði boltann vel út í teiginn og óð sjálfur á eftir honum. Bjarki Baldvinsson var á undan honum og vippaði boltanum framhjá Steinþóri og fyrir markið. Þar var mættur títtnefndur Arnþór Hermannsson og skallaði hann boltann í netið. 7-3 og vonir Dalvíkur/Reynis um 1.deildarsæti að engu.

Arnþór var valinn Heimabakarís maður leiksins og hlaut súkkulaðiskóinn að launum ásamt gjafabréfi í bakaríinu. Hann fékk einnig þrennuverðlaun frá Háriðjunni sem að Björn Elí Víðisson sá um að afhenda. Liðið allt á þó hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Einingin, samheldnin og liðsandinn var í fyrirrúmi í dag og voru allir leikmenn tilbúnir til þess að selja sig dýrt fyrir hvorn annan.

Bjarki var einn af þeim sem átti frábæran leik. Leiddi liðið vel í seinni hálfleik og tók leiðtogahlutverkið föstum tökum. Sveinbjörn Már átti virkilega fínan leik í vinstri bakverðinum og það var að ég held bara einu sinni sem þeir sluppu framhjá honum. Haukur og Jónas unnu vel saman og Ingólfur kom vel inn í markið. Sítalandi og fín frammistaða í hans fyrsta leik. Aðrir skiluðu sínu vel og maður getur ekki annað en hugsað ,,hvers vegna hafa menn ekki spilað svona í allt sumar?". Það þýðir þó ekki að hugsa frekar um það, heldur bara að horfa fram og vonast eftir svipaðri frammistöðu í lokaleik tímabilsins sem verður um næstu helgi gegn Tindastól/Hvöt. Til hamingju með leikinn strákar, þetta var unun á að horfa!

07.09.2011 07:23

Haddi spilaði allan leikinn í sigri Íslands gegn Kýpur

Íslenska landsliðið sigraði í gær sinn fyrsta mótsleik í tæp þrjú ár er liðið lagði Kýpur 1-0 í undankeppni EM á Laugardalsvelli. Þetta var jafnframt síðasti heimaleikur Ísland undir stjórn Ólafs Jóhannessonar en hann mun láta af störfum eftir leikinn gegn Portúgal ytra í næsta mánuði.

Völsungurinn, Hallgrímur Jónasson, spilaði sinn fyrsta alvöru leik með A-landsliðinu í gær en hann stóð vaktina allan leikinn í miðverðinum ásamt Kristjáni Erni Sigurðssyni og stóð sig vel. Haddi þekkir vel tilfinninguna að spila fyrir þjóðina en hann á að baki fjórtán leiki með unglingalandsliðum, 4 með U-19 og 10 fyrir U-21 þar sem hann til að mynda bar fyrirliðabandið.


Hallgrímur skallar hér að marki Kýpverja í leiknum í gær.

Hallgrímur hafði áður spilað einn leik með A-landsliðinu en þá kom hann inn á sem varamaður á 73.mínútu í æfingarleik gegn Færeyjum árið 2008 sem fram fór í Kórnum. Ísland sigraði þann leik, 3-0.

Við óskum Hadda innilega til hamingju með árangurinn og vonumst til að sjá hann taka yfir hjarta varnarinnar í landsliðinu á komandi tímum.

Haddi gekk í raðir GAIS árið 2008 frá Keflavík en var lánaður til SønderjyskE í síðasta mánuði og hefur verið að finna sig vel í dönsku úrvalsdeildinni. Hann var fljótur að vekja athygli á sér í Danmörku en hann tryggði SönderjyskE eftirminnilega 1-0 sigur gegn Lyngby um daginn er hann skoraði sigurmarkið á lokamínútum leiksins.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Hadda eftir sigurinn í gær:



 

Hallgrímur Jónasson er framtíðarleikmaður Íslenska A-landsliðsins.

Myndir: fótbolti.net

05.09.2011 04:00

Guðrún Kristinsdóttir nýr formaður Völsungs

Formannsskipti urðu hjá Íþróttafélaginu Völsungi á aðalfundi þess sem fram fór nú í vikunni. Linda M. Baldursdóttir formaður til 11 ára gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Guðrún Kristinsdóttir kjörinn nýr formaður Völsungs.

Góð mæting var á fundinn miðað við síðustu ár, en á þriðja tug Völsunga tók þátt í líflegum og skemmtilegum umræðum á fundinum þar sem gert var grein fyrir stafsemi félagsins og ársreikningum fyrir síðasta starfsár. Almenn ánægja kom fram með fjárhagslega stöðu félagsins en samkvæmt ársreikningum aðalsjóðs Völsungs varð 5,5 milljón króna hagnaður af starfseminni.


Ný aðalstjórn ásamt framkvæmdastjóra Sveini Aðalsteinssyni. Guðrún Kristinsdóttir, Þóra Kristín Jónasdóttir, Elín M. Gunnsteinsdóttir, Már Höskuldsson og Lúðvík Kristinsson.

Í lok fundar var Lindu og fráfarandi stjórn þökkuð vel unnin störf í þágu Íþróttafélagsins Völsungs sem hefur það að markmiði að eflast enn frekar á næstu árum samfélaginu til góða.

Linda Baldursdóttir og Guðrún Kristinsdóttir.
Linda Baldursdóttir og Guðrún Kristinsdóttir.

Frétt tekin af www.640.is
Myndir tók Aðalsteinn Árni Baldursson


20.08.2011 12:37

Umfjöllun: Kjúllarnir skoruðu í kjúllabæ

  5-2
Sigvaldi Þór Einarsson ('8)
 Rafnar Smárason ('90)

- Matthías Svavar Alfreðsson skrifar úr Mosfellsbæ
Afturelding sigraði Völsung sannfærandi 5-2 í annarri deild karla í sól og blíðu á Varmárvelli í dag. Eins og tölurnar gefa til kynna var leikurinn afar fjörugur en mörkin hefðu auðveldlega getað orðið fleiri miðað við færin.

Leikmenn liðanna gáfu tóninn strax í byrjun því þrjú mörk litu dagsins ljós á fyrstu tíu mínútunum. Egill Gautur Steingrímsson kom Aftureldingu yfir á fjórðu mínútu með langskoti sem Snæþór Haukur Sveinbjörnsson missti klaufalega í netið. Hinn 17 ára gamli Snæþór stóð í markinu í dag þar sem Kjartan Páll Þórarinsson er meiddur og hann gat því ekki mætt sínum gömlu félögum í Aftureldingu.

Húsvíkingar voru fljótir að jafna en eftir laglega sókn slapp Sigvaldi Þór Einarsson einn í gegn og hann þakkaði fyrir sig með því að skora sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk Völsung.


Mosfellingar komust aftur yfir nánast strax í næstu sókn en Arnór Þrastarson slapp þá í gegn og skoraði eftir að Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban sendi inn fyrir.

Wentzel Steinarr komst síðan sjálfur á blað eftir 16 mínútur en hann skoraði þá með laglegu skoti úr aukaspyrnu af 25 metra færi en hann skrúfaði boltann framhjá varnarvegg Völsungs og niður í nærhornið.

Strax í næstu sókn lék Magnús Már Einarsson vörn Völsungs grátt en skaut síðan framhjá í dauðafæri. Birgir Freyr Ragnarsson fyrirliði heimamanna átti einnig góðan sprett fyrir leikhlé en þrumuskot hans fór í slána.

Húsvíkingar fengu einnig gott færi rétt fyrir leikhlé þegar Hafþór Már Aðalgeirsson slapp í gegn en skot hans fór framhjá markinu og staðan 3-1 í leikhléi.

Elfar Árni, fyrirliði Völsungs, í baráttunni

Í síðari hálfleiknum létu heimamenn kné fylgja kviði og Halldór Bogason bætti við fjórða markinu eftir hornspyrnu. Halldór fékk boltann í sig og inn fór hann en skömmu áður hafði hann átt skalla framhjá eftir hornspyrnu.

Eftir þetta fengu bæði lið fín færi til að skora en Snæbjörn í marki Völsungs og Sigurbjartur Sigurjónsson í marki Aftureldingar vörðu nokkrum sinnum vel.

Afturelding náði þó að komast í 5-1 undir lokin þegar Egill Gautur skoraði auðveldlega í autt markið eftir góðan undirbúning frá hinum 16 ára gamla Elvari Inga Vignissyni sem kom inn á sem varamaður í síðari hálfleiknum.

Völsungurinn Haukur Hinriksson í baráttunni.

Elvar fékk sjálfur færi til að komast á blað í viðbótartíma en honum brást bogalistin og Völsungur fór í kjölfarið í sókn sem endaði með marki. Eftir laglegt spil Húsvíkinga fékk Rafnar Smárason boltann og hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Völsung. Eftir miðjuna flautaði Valgeir Valgeirsson dómari leiksins síðan til leiksloka og lokatölur 5-2 fyrir Aftureldingu.

Mosfellingar léku vel í leiknum og eftir að hafa skorað lítið í undanförnum leikjum skoruðu þeir fimm mörk í dag og hefðu auðveldlega getað skorað fleiri. Sigurinn þýðir að liðið er ennþá níunda sæti með 27 stig, sex stigum frá toppsætinu þegar fjórar umferðir eru eftir.

Völsungur er aftur á móti eftir tapið í tíunda sætinu með 22 stig. Það þarf engan prófessor til að sjá að varnarleikur Völsungs er ekki nógu góður þessa dagana en liðið hefur fengið 17 mörk á sig í síðustu þremur leikjum og þarf að stoppa upp í götin fyrir síðustu leikina í mótinu.

Myndir: Magnús Þór Þórhallsson

15.08.2011 19:14

Umfjöllun: Tíu marka jafnteflisfjör

5-5

Byrjunarlið;
Snæþór, Stefán Jón, Haukur, Kristján, Sveinbjörn, Halldór, Jónas, Bjarki, Hafþór, Hrannar, Elfar.

Bekkur; Alli Jói, Bergur, Sigvaldi, Sindri, Rafnar.

Skiptingar:
Alli Jói inn - Hafþór út
Sigvaldi inn - Halldór út


Völsungar fengu topplið Hattar í heimsókn á rennblautan Húsavíkurvöll sunnudaginn síðasta. Liðunum er greinilega ekki ætlað að mætast í blíðu í ár því fyrr í sumar mættust þau á ónothæfum Vilhjálmsvelli þar sem margir leikmenn tróðu marvaða fyrir lífi sínu.

Í marki Völsunga stóð ungur piltur, Snæþór Haukur Sveinbjörnsson, í sínum fyrsta leik fyrir félagið en aðalmarkvörðu liðsins meiddist illa í vikunni á undan. Ekki kjöraðstæður fyrir reynslulítinn dreng.

Fyrstu tuttugu mínútur leiksins var mikið stríð á miðjunni um yfirhöndina og lítið um færi. Mikil grimmd og gredda í báðum liðum sem endaði með markasprengju. Það fyrsta kom á 22.mínútu en þá áttu Hattarmenn aukaspyrnu fyrir utan teig. Föst spyrnan skoppaði rétt fyrir framan Snæþór í markinu sem náði ekki að grípa boltann í bleytunni og fylgdi Vilmar Sævarsson vel á eftir. 0-1 fyrir gestina.

Sú forysta lifði ekki lengi en á 26.mínútu jafnaði Haukur Hinriksson fyrir heimamenn. Hrannar Björn Steingrímsson átti þá aukaspyrnu sem Haukur skallaði að marki og fylgdi fast á eftir boltanum og kom honum yfir línuna. 1-1

Á 29.mínútu náðu gestirnir aftur forystunni. Aukaspyrna var tekin á miðlínunni og fastur boltinn sveif á fjærstöngina þar sem mikill pakki hoppaði upp í boltann sem endaði í fjærhorninu. Erfitt var að sjá hvort einhver hefði náð að setja höfuðið í hann en markið var skráð á Anton Ásvaldsson. 2-1 fyrir Hetti.

Áfram rigndi mörkum inn og á 32.mínútu var komið að Elfari Árna Aðalsteinssyni. Hafþór Mar Aðalgeirsson lagði boltann út á Elfar sem átti bylmingsskot af um 25-30 metra færi sem steinlá í markinu. 2-2 og höfðu menn varla undan við að meðtaka hvað væri að gerast.

Elfar bætti svo sínu öðru marki við á 35.mínútu. Hafþór Mar átti þá fyrirgjöf fyrir mark gestanna þar sem Elfar vann skallabaráttu og skallaði boltann í fallegum sveig yfir markvörðinn. Boltinn lenti á þverslánni og sveig í boga til baka að Elfari sem lá í jörðinni eftir stökk sitt upp í fyrsta boltann. Þar sat hann á rassinum og skallaði boltann aftur upp í loftið og endaði hann örugglega í fjærhorninu. 3-2 fyrir heimamenn og stórskemmtilegt mark þar á ferðinni.

Gestirnir tóku miðju og brunuðu fram í sókn en boltinn fór bakvið mark heimamanna. Slök markspyrna upp úr því leiddi til þess að gestirnir sluppu í gegn um vörn heimamanna og kláraði Högni Helgason færi sitt vel til þess að jafna leikinn í 3-3. Fréttaritari var enn að punkta niður markið á undan og sá þetta því miður ekki nógu vel.

Leikmenn slökuðu aðeins á eftir þetta og lítið gerðist fram að hléi.

Seinni hálfleikur hófst með sömu hörkunni og sá fyrri en lítið gekk að búa til færin. Það fyrsta í hálfleiknum leiddi þó, að sjálfsögðu, til marks. Bjarki Baldvinsson fékk þá boltann fyrir utan vítateig gestanna, dró að sér varnarmenn og renndi boltann út til vinstri á Hrannar Björn Steingrímsson sem átti fast vinstri fótar skot með jörðinni undir markvörðinn. Þarna kláraði Hrannar færi sitt af mikilli yfirvegun og kom Völsungum í 4-3.

Heimamenn bættu enn frekar við á 64.mínútu en þá stakk Elfar Árni boltanum inn á Hafþór Mar sem hljóp með boltann frá miðlínu og inn í vítateig áður en hann skaut boltanum í netið. Markvörður gestanna var með hendur í boltanum en tókst ekki að verja fast skot Hafþórs. 5-3.

Gestirnir brunuðu þá fram í sókn, fengu hornspyrnu og nýttu hana vel. Spyrnan kom inn á teig þar sem Anton Ásvaldsson var einn og óvaldaður og stangaði boltann í netið. 5-4 eftir 65.mínútna leik.

Á 72.mínútu jöfnuðu gestirnir svo leikinn. Garðar Már Grétarsson fékk þá boltann utarlega í teignum, nánast við vítateigshornið. Með allan tíma í heiminum lagði hann boltann snyrtilega fyrir sig áður en hann hamraði hann í slánna og inn, óverjandi fyrir Snæþór í markinu. 5-5 og farið að fara um menn í brekkunni.

Örstuttu síðar fékk Vilmar Sævarsson, leikmaður Hattar, sitt annað gula spjald og þar með það rauða. Heimamönnum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og enduðu leikar því 5-5. 21 mark hefur því verið skorað í síðustu tveimur Völsungsleikjum, 34 í síðustu fjórum. Menn eru klárlega að fá nóg fyrir peninginn á þeim leikjum.

Leikurinn var mikill baráttuleikur og var allt annað að sjá til Völsungsliðsins eftir hrakfarirnar gegn KF í vikunni á undan. Bæði lið lögðu allt sitt í þetta og eftir allt er jafntefli eflaust sanngjörn úrslit þótt bæði lið hefðu auðvitað viljað ná sigrinum.

Elfar Árni Aðalsteinsson var Heimabakarís maður leiksins og hlaut súkkulaðiskóinn að launum ásamt gjafabréfi í Heimabakarí. Elfar skoraði tvö mörk og lagði upp eitt auk þess sem vinnslan í honum var mikil og baráttan til fyrirmyndar. Liðið barðist og barðist, sótti vel og varðist líka þokkalega í opnum leik en átti virkilega erfitt með að verjast föstum leikatriðum. Það varð okkur að falli í þessum leik.

Næsti leikur er næsta laugardag í Mosfellsbæ en þá heimsækjum við Aftureldingu. Menn verða að halda áfram þessum sóknarleik sem er að skila mörkum og einbeita sér enn betur þegar þarf að verjast. ÁFRAM VÖLSUNGUR!

10.08.2011 14:00

Umfjöllun: Tap í þrettán marka leik

 7-   4
Arnþór Hermannsson
Elfar Árni Aðalsteinsson
Bjarki Baldvinsson
Sjálfsmark

KF tók á móti Völsungi á Ólafsfirði í gærkvöldi, við hreint út sagt frábærar aðstæður, smá golu og frábærum Ólafsfjarðarvelli, sem hefur væntanlega sjaldan eða aldrei verið betri. KF vann fyrri leikinn á Húsvík 2-0 og Völsungar vildu væntanlega hefna fyrir þau úrslit.

En það var ekki að sjá á þeirra leik í upphafi að þeir ætluðu sér það. Strax eftir hálftíma leik var staðan nefnilega orðin 4-0. Heimamenn byrjuðu leikinn að mikilli hörku og áttu þeir grænklæddu í miklum vandræðum með sóknarmenn heimamanna, þá sérstaklega Gabríel Reynisson og Þórð Birgisson.

Það var einmitt Gabríel sem skoraði fyrsta mark heimamanna strax á sjöundu mínútu. Hann fékk laglega sendingu inn fyrir vörn gestanna frá Agnari Sveinssyni og var á undan Kjartani Páli, markmanni Völsungs, í boltann og rendi honum í autt markið.

Heimamenn voru ekki lengi að bæta við öðru marki, því Kjartan fékk sendingu aftur, sem Þórður Birgisson elti og Kjartan hreinsaði frá en boltinn fór í Þórð og upp í loftið sem endaði með því að Sigurbjörn Hafþórsson skallaði boltann nánast á marklínu innfyrir mark gestanna og staðann orðinn 2-0 eftir 15 mínútur. Gestirnir virkuðu mjög sofandi og náðu lítið að skapa sér fram á við.

Þórður Birgisson skoraði síðan sitt fyrsta mark þegar um 30 mín voru liðnar af leiknum, þá komst Þórður ein í gegn um vörn Völsunga, eftir að hafa hlaupið af sér varnarmenn Völsungs og setti boltann fram hjá Kjartani. Vörn gestana virkaði mjög óörugg í fyrrihálfleik, þó var Haukur Hinriksson að skila sínu ágætlega. Þórður Birgisson skoraði síðan sitt annað mark þegar 33 mínútur voru liðnar af leiknum og staðan orðin 4-0.

Gestirnir fengu þó smá von rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, þegar heimamenn gerðu sig seka um að missa boltann mjög aftarlega á miðsvæðinu, og náðu gestirnir að nýta sér það mjög vel og skoraði Arnþór Hermannsson gott mark fyrir gestina eftir laglega fyrirgjöf frá hægri kanti. Staðan sem sagt 4-1 í hálfleik.

Arnþór Hermannsson skorar fyrir Völsung.

Gestirnir byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti. Því Elfar Aðalsteinson skoraði strax á 50. mínútu og Völsungar komnir inn í leikinn. Elfar fékk boltann vel fyrir utan markteig og hamraði boltanum í hægra hornið á marki KF alveg út við stöng. Mjög gott skott hjá Elfari.

Heimamenn virtust vakna við markið og Þórður var ekki búinn að segja sitt síðasta og fullkomnaði þrennuna með marki á 65. mínútu. Þórður hamraði boltan viðstöðulaust í mark horn gestanna.

Tæpum 10 mínútum síðar kom mark leiksins, þegar Gabríel Reynisson þvældi að því er virtist 4 eða 5 varnarmenn heimamanna áður en hann lagði boltann fram hjá Kjartani í marki gestanna.

Þetta mark var hreint með ólíkindum, og hefðu fótbolta snillingarnir í útlöndum verið mjög stoltir af tilþrifum sem þessum.

Staðan því orðin 6-2 og leikurinn nánast búinn, eða hvað. Húsvíkingar eru ekki þekktir fyrir að gefast upp þó að á móti blási. Bjarki Baldvinsson sem hafði komið inná sem varamaður skoraði 3 ja mark gestanna þegar um 3 mínútur lifðu af venjulegum leiktíma, markið kom eftir hornspyrnu og féll boltinn fyrir Bjarka eftir barning í víteteig heimamanna, sem gerði vil í að klára færið. Gestirnir minnkuðu svo muninn ennfrekar í 6-4 tveim mínútum síðar þegar Kristján Vilhjálmsson, varð fyrir því óláni að skora í eigið mark eftir vel útfærða aukaspyrnu hjá gestunum. Von kviknaði því aftur hjá gestunum því viðbótartíminn var 5 mínútur.

Sú von sloknaði reyndar á 93. mínútu þegar Halldór Logi skoraði 7 mark heimamanna eftir hornspyrnu, markið var nokkuð líkt því sem Bjarki Baldvinsson, hafði skorað nokkru áður fyrir gestina, boltinn datt niður eftir barning í teig gestanna og kláraði hann færið vel. Kjartan vildi reyndar meina að brotið hafi verið á sér en Bjarni Hrannar dómari var ekki á sama máli. Niðurstaðan því 7-4 í ótrúlegum fótboltaleik á Ólafsfirði.

Myndir: Guðný Ágústsdóttir

07.08.2011 19:02

Umfjöllun; Árborgarmenn kjöldregnir á Gömlu vík!

6-0
Arnþór Hermannsson (víti '9)
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('42)
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('45+1)
Elfar Árni Aðalsteinsson ('55)
Sveinbjörn Már Steingrímsson ('62)
Hrannar Björn Steingrímsson ('90+1)

Byrjunarlið;
Kjartan, Stefán Jón, Sveinbjörn Már, Haukur, Halldór, Jónas, Ármann, Arnþór, Alli Jói, Hrannar, Elfar

Bekkur; Snæþór, Sigvaldi, Bergur, Jóhann og Bjarki.

Skiptingar;
Jóhann Páll inn - Ármann út
Bergur inn - Halldór út
Sigvaldi inn - Sveinbjörn út


Föstudagskvöldið 5.ágúst fengu Völsungar Árborgarmenn í heimsókn á Húsavíkurvöll. Grátt var yfir veðrinu en lítill sem enginn vindur og úrkomulaust. Í stuttu máli um leikinn má segja að gestirnir hafi vart átt möguleika frá því að flautað var til leiks.

Fyrsta færi leit dagsins ljós á 8.mínútu en eftir frábært samspil Elfars Árna Aðalsteinssonar og Arnþórs Hermannssonar slapp Elfar í gegn en markvörður gestanna, Steinar Örn Stefánsson, sá við honum og varði út. Aðeins mínútu síðar vann Elfar boltann af varnarmanni og óð inn í teiginn þar sem hann var einn á móti markverði en var tekinn niður af aftasta varnarmanni. Klár vítaspyrna dæmd en varnarmanninum ekki einu sinni veitt tiltal. Arnþór steig á punktinn og klíndi boltanum í markvinkilinn af miklu öryggi og staðan orðin 1-0 fyrir Völsunga.

Stuttu seinna fór Hrannar Björn Steingrímsson illa með hægri bakvörð gestanna, eins og átti eftir að gerast margoft síðar í leiknum,og átti bylmingsskot að marki sem Steinar varði vel í horn. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson fékk stungusendingu skömmu síðar en skot hans utarlega úr teignum fór rétt framhjá fjærstönginni.

Eftir um hálftíma leik sendi Hrannar Björn aukaspyrnu inn á teig sem Haukur Hinriksson tók listavel niður og sneri í skot en Steinar í Árborgarmarkinu sá við honum.

Á 42.mínútu juku heimamenn svo við forystuna. Hrannar Björn fékk boltann úti á vinstri vængnum, lék snyrtilega á bakvörðinn áður en hann gaf lága fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem mættur var Aðalsteinn Jóhann og kláraði hann færið vel. 2-0 fyrir heimamenn.

Heimamenn ætluðu ekki að láta tveggja marka forystu duga í hálfleik og í uppbótartíma fyrri hálfleiks kom þriðja markið. Hrannar fékk þá boltann út til vinstri, sótti inn að teig áður en hann gaf fyrirgjöf út í teiginn þar sem Aðalsteinn kom aðvífandi og setti boltann alveg út við fjærstöngina. 3-0 og var staðan þannig í hálfleik.

Heimamenn byrjuðu seinni hálfleikinn með látum en samspil Aðalsteins og Elfars leiddi til fyrirgjafar sem endaði með vinstrifótarskoti Hrannars framhjá fjærstönginni. Örstuttu síðar átti Sveinbjörn Steingrímsson fyrirgjöf sem Elfar skallaði niður fyrir fætur Arnþórs sem lét bylmingsskot ríða af en Steinar í marki Árborgar varði á glæsilegan hátt.

Á 54.mínútu átti Arnþór hörkuskot frá vítateig sem Steinar varði til hliðar þar sem Elfar Árni mætti í eftirfylgnina og skaut að markinu en Steinar var eldsnöggur á fætur eftir fyrra skotið og varði það seinna vel.

Á 55.mínútu vann Elfar Árni boltann vel af varnarmanni, sótti inn í teiginn og vippaði boltanum yfir markvörðinn sem út í hann óð. Glæsilegt mark og staðan orðin 4-0 fyrir heimamenn.

Erlingur Ingason, leikmaður Árborgar, fékk svo að líta rauða spaldið á 57.mínútu. Honum hefur verið farið að leiðast einstefnan og fór í glórulausa sólatæklingu á Sveinbjörn Steingrímsson sem gat aðeins endað með rauðu spjaldi. Tveimur mínútum síðar átti Ólafur Magnússon, Árborgarmaður, svo sannarlega skilið að fylgja Erlingi félaga sínum í sturtuna en subbuleg tækling hans í efri hluta Ármanns Gunnlaugssonar fer seint í sögubækurnar fyrir fegurð. Hann slapp þó með gult spjald.

Á 62.mínútu slógu Völsungar þó öll læti úr Árborgarmönnum. Elfar Árni átti sendingu út til hægri á Aðalstein sem átti fyrirgjöf út í teiginn þar sem vinstri bakvörðurinn Sveinbjörn Steingrímsson var mættur og hamraði boltann í netið. Markvörður gestanna var þó með hendur í boltanum en skotið of fast til þess að slá boltann burt. Fyrsta mark Sveinbjörns fyrir meistaraflokk og gáfu fagnaðarlæti hans merki um það að þetta kæmi ekkert fyrir daglega.

Elfar Árni komst inn í innkast til baka eftir þetta og lék á varnarmann áður en hann skaut framhjá markinu. Völsungar hægðu á sér svo um munaði og gerðu þrjár breytingar á liðinu. Þeir voru þó ekki alveg hættir en á 90.mínútu vann Aðalsteinn boltann á miðjunni og sendi upp völlinn á Elfar Árna sem stakk inn fyrir á Hrannar. Markvörður Árborgar fór út en Hrannar var á undan í boltann og kom honum framhjá Steinari. Hrannar lék síðan að markinu og lék á tvo varnarmenn áður en hann kom boltanum yfir línuna. 6-0 og urðu það lokatölur í leiknum.

Völsungar höfðu yfirburði allan tímann og komust sóknarmenn Árborgar ekkert áleiðis. Sterkur leikur hjá varnarlínunni og Kjartan greip vel inn í þær fyrirgjafir sem bárust. Hrannar Björn var valinn Heimabakarís maður leiksins og hlaut súkkulaðiskóinn að launum. Hrannar lagði upp tvö mörk og skoraði sjálfur eitt af miklu harðfylgi. Hægri bakvörður Árborgar átti í mestu vandræðum með hann og mundi nefndin ekki eftir því að hann hefði nokkurn tímann verið nálægt því að taka boltann af Hrannari.

Elfar Árni átti líka virkilega góðan leik. Vann boltann í sífellu af varnarlínu gestanna, skoraði eitt mark og lagði upp tvö. Kom sér í góð færi en hittnin var ekki með Elfari á föstudaginn og hefði hann getað gert betur fyrir framan markið í nokkur skipti. Alli Jói átti prýðis leik. Tvö góð mörk og stoðsending ásamt því að vinna vel með Stefáni Jóni þarna í bakverðinum. Ákvarðanataka brást Alla aðeins í tveimur fínum færum en hann var alls ekki einn um að gera slíkt. Það var þó mikil grimmd og gredda í sóknarleik liðsins á köflum, sem oft hefur vantað í sumar.

Það helsta sem hægt er að kvarta undan er það að liðið átti 30 skot í leiknum. 19 þeirra fóru á rammann. Góður leikur hjá markverði Árborgar en við áttum að skora meira heldur en 6 mörk í þessum leik! Einhverjir vilja kannski meina að það sé full gróft að segja slíkt en mér þykir það ekki. Þegar komið er blóð á tennurnar og menn finna fyrir því hversu mikla yfirburði þeir hafa þá á bara að rúlla yfir andstæðinginn.

Er þó meiriháttar sáttur með þessi þrjú stig. Nú verða menn að halda haus og halda áfram á þessari braut. Erfiður leikur gegn KF á morgun og menn verða að mæta einbeittir í þann leik. Þessi leikur gefur okkur ekkert inn í þann leik nema sjálfstraustið. ÁFRAM VÖLSUNGUR!!




05.08.2011 13:14

Upphitun: Árborg

Völsungar fá Árborgarmenn í heimsókn föstudagskvöldið 5.ágúst kl.19.00.

Völsungar eiga harma að hefna frá fyrri leik liðanna en það var eini sigurleikur Árborgar í sumar. 1-0 fór sá leikur á Selfossi í maí þar sem að Andy Pew skoraði eina mark leiksins eftir aukaspyrnu utan af kanti.

Liðin eru í 10. og 11.sæti 2.deildar eftir 14 leiki. Við erum með 18 stig, sex sigurleiki og átta töp, á meðan Árborg hefur 6 stig. Við Völsungar verðum að horfa fram á við og fara að hala inn stigum. Það er þéttur pakki fyrir ofan okkur og við þurfum ekki marga sigurleiki til þess að blanda okkur skemmtilega í þá baráttu að enda í efri hlutanum. Best er þó alltaf að taka einn leik í einu og byrjum við á Árborgarmönnum í kvöld!

Liðið lá illa gegn Reyni í Sandgerði í síðustu umferð en sá leikur tapaðist 5-2. Útsendarar okkar á leiknum kusu Kjartan Pál mann leiksins en hann bjargaði oft á stórglæsilegan hátt. Vörn liðsins var þó eins og gatasigti sem hreinlega míglak. Menn verða að berja það úr sér og mæta alveg snargeðveikir til leiks í kvöld. Sóknarleikur liðsins var jákvæður að því leytinu til að mörg færi sköpuðust en þó vantaði endahnútinn á sóknirnar og hafa menn verið að vinna í að bæta úr því hefur mér sýnst að undanförnu.

Hafþór Mar er í banni og dettur því úr hóp. Bergur Jónmundsson kemur inn í hans stað en Bergur hefur ekki komið við sögu í hóp eftir að hann meiddist í 1.umferð.

Árborg hafa misst Geir og Kolla frá því að við spiluðum við þá síðast en fengu nokkra leikmenn til sín í júlí. Þeirra þekktastur er Almir Cosic sem kom frá HK. Almir komst í Íslandsfréttirnar fljótlega eftir að hann fluttist til landsins og byrjaði að spila fyrir Leikni Fáskrúðsfjörð en Almir hafði víst einhvern tímann farið á reynslu til Newcastle. Krúttlegt.

Í kvöld þurfa menn að mæta dýrvitlausir til leiks og sýna okkur að menn séu í þessu af krafti og eru tilbúnir í að klára þetta sumar með stæl. Hæfilegt magn af skemmtun þarf að fylgja og vel af sjálfstrausti og þá getur okkar lið á góðum degi sýnt frábæra knattspyrnu. Ykkar er sviðið drengir, standið ykkur.

27.07.2011 18:46

Steinþór og Gunni Siggi farnir.

Tveir leikmenn hafa yfirgefið Völsung núna í síðustu viku. Steinþór Mar Auðunsson fór í Dalvík/Reyni og Gunnar Sigurður Jósteinsson fór í Magna.

Steinþór kom til Völsungs frá KA fyrir síðasta tímabil. Hann spilaði alla leikina á síðasta tímabili í deild og bikar, samtals 24 leiki. Sýndi toppleiki oft á tíðum og var valinn Heimabakarís leikmaður ársins 2010 á lokahófi félagsins síðasta haust. Í sumar hefur Steinþór barist við Kjartan Pál Þórarinsson um markvarðastöðuna og spilað 6 leiki í deild og bikar.

Við kveðjum félaga Steinþór með þökkum fyrir hans tíma hjá félaginu og vonandi munum við síðar sjá hann í grænu (ég veit að markmannstreyjan er öðruvísi, það er bara ekkert hægt að segja það!) treyjunni á ný.

Gunni Siggi er uppalinn Völsungur sem hefur spilað fyrir Völsung, Magna og Leikni Fáskrúðsfirði. Gunni hefur lítið spilað fyrir Völsung undanfarið og bauðst það tækifæri að fá spilatíma hjá Magna. Hann spilaði 11 leiki fyrir Völsung í sumar og skoraði þar 1 mark. Gunni mun halda áfram að æfa með Völsungum og keyra sig á milli í leiki. Ég veit ekki betur en að þetta sé lánssamningur og Gunni sé afturkallanlegur eftir mánuð. Gunni á 127 leiki að baki fyrir Völsung og hefur skorað í þeim 10 mörk.

Við þökkum þeim félögum fyrir tímann í sumar og óskum þeim góðs gengis í nýjum stríðum.

27.07.2011 14:07

Umfjöllun: Auðveldur sigur Völsunga

2-0

Ármann Örn Gunnlaugsson ('35)
Haukur Hinriksson ('82)

Byrjunarlið: Kjartan, Sveinbjörn Már, Haukur, Halldór, Sigvaldi, Jónas, Ármann, Bjarki, Hrannar, Jóhann Páll og Elfar Árni.

Bekkur: Arnþór, Alli Jói, Rafnar, Stefán Jón og Sindri.

Skiptingar;

Jóhann út - Alli Jói inn
Jónas út - Arnþór inn
Sveinbjörn út - Sindri inn



Völsungar tóku á móti ÍH frá Hafnarfirði á Húsavík síðasta laugardag í dúndurmögnuðu veðri. Mikið var um manninn í brekkunni en mikill fjöldi fólks var í bænum sökum bæjarhátíðar er kallast Mærudagar.

Völsungar áttu harma að hefna frá fyrri leik liðanna en ÍH vann heimaleik sinn 4-2 fyrr í sumar. Það er jafnframt eini sigurleikur ÍH í deildinni hingað til.

Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og eftir um mínútu leik var Hrannar Björn Steingrímsson sloppinn í gegn og óð með boltann í teiginn og lét skotið ríða af en Sveinbjörn Ingi Grímsson í marki ÍH varði alveg stórglæsilega.

Á 9.mínútu fengu Völsungar aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn og tók Hrannar Björn spyrnuna. Boltinn fór með jörðinni og framhjá markinu en markvörður gestanna var ekki vel staðsettur og því hefði voðinn verið vís ef boltinn hefði farið á markið.

Hitastigið var hátt og ekki fór það vel í Davíð Atla Steinarsson, leikmann ÍH. Á 13.mínútu lenti hann í samstuði við Halldór Fannar Júlíusson sem lá eftir og eftir orðaskipti við Sveinbjörn Má Steingrímsson tók Davíð þá heimskulegu ákvörðun að ýta Sveinbirni í grasið. Verðskuldað rautt spjald og róðurinn orðinn virkilega þungur fyrir Hafnfirðinga.

Völsungar sóttu mikið meira eftir þetta og átti Hrannar Björn skot úr þröngu færi sem Sveinbjörn í marki ÍH náði rétt að verja með fætinum útaf. Hrannar hafði skömmu áður átt fyrirgjöf á Elfar Árna Aðalsteinsson sem skaut boltanum yfir markið frá markteig.

Á 35.mínútu brutu heimamenn þó ísinn. Eftir laglega sókn fékk Hrannar boltann á hægri kantinum og gaf fyrir. Boltinn féll slysalega með Ármanni Gunnlaugssyni sem nýtti sér það vel og vippaði boltanum skemmtilega yfir markvörðinn. 1-0 fyrir Völsunga og forystan virkilega verðskulduð.

Aðeins mínútu síðar fengu þeir kjörið tækifæri til þess að bæta við en Elfar Árni elti langan bolta innfyrir og kom boltanum framhjá Sveinbirni markverði sem var kominn langt út fyrir teig. Elfar lék á varnarmann áður en hann skaut að marki en boltinn sveif rétt framhjá stönginni fjær.

1-0 fyrir Völsunga í hálfleik.

Í seinni hálfleiknum slökuðu heimamenn fullmikið á klónni og gestirnir komust oftar upp völlinn. Lítið var um færi hjá liðunum og leið leikurinn einhvern veginn áfram án teljandi frétta. Á 75.mínútu átti varamaðurinn Arnþór Hermannsson þó hörkuskot utan af velli sem Sveinbjörn Ingi í marki ÍH varði meistaralega í horn.

Völsungar gengu þó frá leiknum á 82.mínútu en þá tók títtnefndur Hrannar Björn hornspyrnu sem Haukur Hinriksson mætti í endann á og stangaði í markið. 2-0 fyrir heimamenn og sigurinn í höfn.

Lokatölur því 2-0 og sigur heimamanna verðskuldaður.

Haukur Hinriksson var valinn Heimabakarís maður leiksins og hlaut tvenn gjafabréf að launum. Annað þeirra með inneign í bakaríinu og hitt fyrir marsipantertu en í tilefni Mærudaga kom það í staðinn fyrir súkkulaðiskóinn margfræga.

Haukur var sem klettur í vörninni og fór lítið framhjá honum. Halldór Fannar átti fínan leik við hlið hans og eru þeir að mynda ágætis miðvarðapar. Þetta var aðeins annar leikur Halldórs síðan hann kom frá Danmörku.

Sveinbjörn Már spilaði sinn fyrsta leik í rúmt ár og stóð sig mjög vel. Hann hljóp þangað til hann var búinn og vel meira en það. Með honum kemur mikill kraftur í liðið og barátta. Sindri Ingólfsson kom inn á fyrir Sveinbjörn í restina en það var fyrsti KSÍ leikur Sindra fyrir Völsung. Við óskum honum innilega til hamingju með það.

Hrannar Björn átti góðan leik og fór mikinn í sóknaraðgerðum okkar. Lagði upp bæði mörk liðsins og virkilega sterkt að hann sé kominn aftur á ról. Góður 2-0 sigur þótt liðið hafi oft sýnt meira en á laugardag.

22.07.2011 15:27

Haffi á sínum stað í byrjunarliðinu í sigri gegn Svíum


Okkar maður Hafþór Mar var á sínum stað í byrjunarliði U19 ára landsliðsins er strákarnir fylgdu eftir slátrun á Wales í fyrsta leik sínum á Svíþjóðarmótinu með því að vinna 2-0 sigur á heimamönnum í öðrum leik liðsins sem fram fór í gær. Blikinn Árni Vilhjálmsson skoraði bæði mörk Íslands í leiknum á 38. og 62. mínútu en það síðara kom úr vítaspyrnu.

Ísland leikur á laugardaginn lokaleik sinn á mótinu þegar þeir mæta Norðmönnum en þeir töpuðu gegn Wales í gær, 1-3. Þegar ein umferð er eftir er Ísland með sex stig, Wales og Svíþjóð með þrjú og Noregur ekkert.

Til hamingju Haffi og félagar !

19.07.2011 13:33

Hafþór skoraði í öruggum sigri U19 gegn Wales

Hafþór Mar Aðalgeirsson var í byrjunarliði U19 landsliðsins sem mætti Wales á Svíþjóðarmótinu í dag en mótið fer fram 18-24 júlí. Strákarnir leika einnig á móti heimamönnum og Noregi en óhætt er að segja að mótið hafi farið vel af stað hjá drengjunum því þeir rústuðu Wales 5-1 í fyrsta leik sínum á mótinu í dag. Hafþór Mar var á skotskónum sem fyrr og skoraði fimmta og síðasta mark Íslands en markið kom á 56 mínútu leiksins.

Við munum fylgjast vel með Haffa þarna úti og óskum honum innilega til hamingju með þessa frábæru byrjun.


19.07.2011 13:18

Tap á Eskifjarðarvelli

3-0

Strákarnir töpuðu á Eskifirði um síðustu helgi en Völsungur mætti Fjarðabyggð á laugardaginn er tólfta umferð 2.deildar fór fram. Eftir leiki helgarinnar situr Völsungur í 10.sæti með 15 stig en hér fyrir neðan má lesa umfjöllun sem birtist á fótbolti.net eftir leikinn.


Úr leik liðanna um helgina, Elfar Árni fallegur að vanda. Mynd/Kristín

Það var einbeitt lið Fjarðabyggðar sem mætti til leiks gegn Völsungi á Eskifjarðarvelli í dag. Greinilegt var að leikmenn liðsins voru staðráðnir í að kvitta fyrir 3-0 tapið í fyrri umferðinni á Húsavík.

Leikurinn byrjaði fjörlega og framan af voru leikmenn beggja liða að þreifa fyrir sér en á 24. mínútu fékk Mirnes Smajlovic boltann upp hægra megin og með tvo menn í sér lagði hann boltann út til vinstri á Jóhann Ragnar Benediktsson sem þrumaði boltanum í nærhornið frá vítateigslínu og kom Fjarðabyggð í 1-0.

Á 33. mínútu sótti Fjarðabyggð upp vinstra megin og fyrirgjöfin rataði á Hákon Þór Sófusson sem lagði boltann snyrtilega í fjærhornið og kom Fjarðabyggð í 2-0.

Aðeins 6 mínútum síðar kom þriðja mark Fjarðabyggðar. Jóhann Ragnar Benediktsson átti þá langt innkast beint á kollinn á Fannari Árnasyni sem skallaði boltann í hornið á Völsungsmarkinu og Fjarðabyggð með örugga 3-0 forystu í hálfleik.

Seinni hálfleikur var jafnari og áttu bæði lið nokkra góða spretti en engin mörk komu þrátt fyrir góð færi. Sérstaklega var Fjarðabyggð nálægt því að bæta við mörkum í tvígang en það tókst ekki.

Völsungar börðust allan leikinn en áttu við ofurefli að etja og var til fyrirmyndar að sjá til Fjarðabyggðarliðsins í dag þar sem barátta, samvinna og samheldni skilaði góðum sigri.
Flettingar í dag: 52
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 115
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 603712
Samtals gestir: 169333
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 06:35:31